
Þjónusta
Kostnaðarmat og kostnaðaráætlun
Þegar búið er að greina hvað þarf að laga er næsta spurning oft hvað framkvæmdirnar munu kosta. Zedrus Eignarmat getur unnið kostnaðarmat vegna fyrirhugaðra viðgerða, viðhalds eða endurbóta.
Kostnaðaráætlun getur nýst sem grunnur að ákvörðun um framkvæmdir, fjármögnun eða frekari undirbúning og auðveldað samanburð á tilboðum verktaka. Með skýrum kostnaðarmati fær eigandi eða húsfélag betri yfirsýn yfir fjárhagslegt umfang verksins áður en ráðist er í framkvæmdir.
Matið byggist á faglegri skoðun og þeim gögnum sem liggja fyrir hverju sinni, og er ætlað að veita raunhæfa sýn á hugsanlegan kostnað en ekki bindandi tilboð frá verktaka.
Helstu atriði
- Kostnaðarmat á grundvelli niðurstaðna skoðunar
- Kostnaðaráætlun fyrir viðgerðir, viðhald og endurbætur
- Grunnur að ákvörðun um framkvæmdir og fjármögnun
- Auðveldar samanburð á tilboðum verktaka

Viltu fá kostnaðarmat á viðgerðir?
Segðu okkur frá fyrirhuguðum viðgerðum eða viðhaldi og við aðstoðum við að meta kostnað.
