Zedrus Logo
Eignarmat
Fastein þar sem meta þarf tjón
Þjónusta

Tjónamat á fasteignum

Við tjón á fasteign getur verið mikilvægt að fá sjálfstætt mat á umfangi þess og þeim úrbótum sem kunna að vera nauðsynlegar. Zedrus Eignarmat getur framkvæmt óháða skoðun og mat vegna fasteignatjóna.

Slíkt mat getur meðal annars nýst fasteignaeigendum þegar þörf er á frekari gögnum um umfang tjóns eða þegar óvissa eða ágreiningur ríkir um fyrirliggjandi mat. Zedrus Eignarmat leggur áherslu á að niðurstöður byggist á faglegri skoðun og þeim gögnum sem liggja fyrir hverju sinni.

Ekki eru öll vandamál fasteigna augljós við fyrstu sýn. Leki, raki, kuldabrýr, ófullnægjandi frágangur og aðrir gallar geta komið fram löngu eftir að byggingu eða framkvæmd lýkur. Þegar ágreiningur kemur upp getur fagleg skoðun óháðs aðila veitt mikilvægar upplýsingar um raunverulegt ástand eignarinnar.

Helstu atriði

  • Sjálfstætt og óháð mat á umfangi tjóns
  • Greining á nauðsynlegum úrbótum
  • Gagnlegt þegar óvissa eða ágreiningur ríkir
  • Niðurstöður byggðar á faglegri skoðun og fyrirliggjandi gögnum
Óháð tjónamat á fasteign

Þarftu mat á fasteignatjóni?

Hafðu samband og segðu okkur frá tjóninu. Við aðstoðum við óháða skoðun og mat.